Ég er þjálfari og Zumba kennari, er lífsglöð og brosmild, elska að hreyfa mig og fara í langa göngutúra með stóra franska fjárhundinn minn sem þarf og vill fara út þótt það sé kolvitlaust veður!
Uppáhaldsmaturinn er allt sem kærastinn minn eldar, er heppin að búa með snilldarkokki!
Mitt lífsins mottó er 'Þú getur ALLT sem þú vilt', 'Gerðu það sem hjartað segir þér' og 'Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig'.