Hádegis Hleðslan🔋 er tækifæri til að stökkva úr vinnu í þínum daglegu fötum og láta leiða þið í vísindalega sannreynd bjargráð til að:
1. Slökkva streituna og hlaða battríin, 2. Koma orkumeiri aftur til vinnu, 3. Fara með betri líðan heim að loknum vinnudegi. Þú mætir þegar þér hentar milli 12 og 13, og ert eins lengi og þér hentar. Allt hannað til að vera auðvelt og þægilegt!Velkomin í þínum daglegu fötunum inn í rökkvað rými umvafið miðjarðarhafs hita
og ilmandi náttúru, allt tilbúið fyrir þig til að líða út af við öldur tónlistar og fjarlægan fuglasöng. Þú lætur leiða þig í vísindalega sannreynd bjargráð sem geta slökkt streituviðbrögðin í gegnum 🔵 Öndun - sem róar streitukerfið. 🟢 Teyjur og sjálfsnudd - sem losar vöðvaspennu og verki. 🟠 Núvitund - sem styrkir frammheilan í að fækka streituvöldum. 🟡 Power Nap - sem slakar á streitukerfinu og verndar bæði hjartað og heilan. 💕 Kærleikur - eða parental care heilakerfið sem getur slökkt streituviðbrögð. 🙏 Þakklæti - heilakerfi sem fækkar streituvöldum með því að njóta þess góða sem við höfum. Velkomin í Hádegis Hleðsluna 🔋 Opið öllum án áskriftar í ágúst.