Persónuverndarstefna

Öryggi persónuupplýsinga meðlima skiptir RFC ehf miklu máli. 

Hvað geymir RFC í gagnagrunni?

Grunnupplýsingar: Nafn, heimilisfang, kennitölu, símanúmar, netfang, augnmynd og þær þjónustuleiðir og tímabil sem viðskiptavinur hefur keypt.

Greiðslu-upplýsingar:
RFC notar þjónustu frá færsluhirði þar sem RFC geymir einungis einkvæmt sýndarnúmer hjá sér í stað kortanúmers. Þetta númer uppfærist þó gildistími greiðslukortsins sé liðinn og eða sjálfu greiðslukortinu hefur verið týnt eða lokað, líkt og hjá öðrum áskriftarveitum.

Vafrakökur:
"Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vafrinn þinn geymir í tölvunni þinni að beiðni netþjóna. RFC notar þessar upplýsingar til að vita hversu oft þú heimsækir heimasíðuna, hvað þú keyptir og til markaðssetningar. 

Myndavélar.
Á flestum sameiginlegum svæðum í öllum stöðvum RFC fer fram rafræn vöktun með eftirlitsmyndavélum. Þær eru til þess að tryggja öryggi starfsfólks og viðskiptavina á meðan þau nýta þá þjónustu sem veitt er ásamt því að gæta hagsmuna RFC.  Sjá nánar hér að neðan "Fræðsla vegna notkunar eftirlitsmyndavéla" 

Augnskanni: 
Aðgangi að Reebok Fitness er stýrt með augnskanna. Við fyrstu heimsókn er tekin augnmynd af iðkendum sem er nauðsynlegt svo hægt sé að veita aðganginn. Öll þurfa að nota augnskannann við hverja heimsókn í Reebok Fitness. Við það safnast mætingarsaga sem er geymd eingöngu af öryggis- og þjónustuástæðum og eru aldrei afhentar þriðja aðila nema þá með leyfi viðskiptavinar.

Réttar persónuupplýsingar hjá RFC og uppfærsla þeirra eru á ábyrgð meðlima. Vilji meðlimur uppfæra persónulegar upplýsingar sínar og/eða óska eftir breytingu á aðild þá er það gert á "Mín síða". Nánari upplýsingar eru aðgengilegar hér.

Gakktu úr skugga um að þú hafir lesið og skilið persónuverndarstefnu RFC ehf, áður en þú samþykkir skilmála samnings þíns.

Fræðsla vegna notkunar eftirlitsmyndavéla

Í 14. grein Persónuverndarlaga segir m.a. um rafræna vöktun: „Þegar rafræn vöktun fer fram á vinnustað eða á almannafæri skal með merki eða á annan áberandi hátt gera glögglega viðvart um þá vöktun og hver sé ábyrgðaraðili.“

Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er: 
RFC ehf. kt.7105110120 ber ábyrgð á rafrænni vöktun sem fer fram á heilsuræktarstöðvum ReebokFitness

Tilgangur vöktunarinnar: 
Í öryggis- og eignavörsluskyni.
Rafræn vöktun fer fram í þeim tilvikum sem hún telst nauðsynleg. Myndavélaeftirlit getur meðal annars þótt nauðsynlegt til að tryggja öryggi starfsfólks og þjónustunotenda eða til að koma í veg fyrir þjófnað eða eignaspjöll.

Heimild til vinnslu: 
Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna RFC ehf. af öryggis- og eignavörslu

Tegundir persónuupplýsinga: 
Unnið er með myndefni sem verður til við vöktunina þar sem sjá má einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.

Viðtakendur: 
Einungis er heimilt að skoða myndefni við sérstök tilefni og er það aðeins aðgengilegt æðstu stjórnendum RFC. Efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað getur jafnframt verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið afhent tryggingafélagi sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls. Sjá að öðru leyti 5. og 10. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.

Varðveislutími myndefnis: 
Myndefni er almennt varðveitt í 30 daga eða skemur og eyðist sjálfkrafa. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Ef myndefni er afhent lögreglu er öðrum eintökum af efninu eytt.“ Sjá að öðru leyti 2. tölul. 2. mgr. 5. gr. og 11. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.

Réttindi einstaklinga: 
Þú átt rétt á að skoða myndefni þar sem þú sést. Einnig áttu rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd: 
Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.


Frekari upplýsingar um réttindi einstaklinga í tengslum við þessa vöktun má nálgast með tölvupósti til: voktun@rfc.is

Ertu með ábendingu út af þessari síðu? Smelltu hér!
cross linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram